28desember
jæja nú er akkúrat mánuður síðan ég bloggaði síðast þannig að ég ákvað að sitjast niður og skrifa nokkrar línur..
Af mér er allt gott að frétta, fékk marga fallega jólapakka og mikin og góðan mat um jólin.. á rosa góða fjölskyldu og marga og misjafna vini ;o) Hehe
Fór á ball annan í jólum.. Það var gaman! Allir í jólafríi og allir þess vegna á djamminu.. Unnur kom brunandi sunnan að til að djamma með okkur! Hún er svöl..
En já hef svo sem ekkert meira að segja, ætla að fara út og hoppa á einn hest og skella mér svo á Akureyri með Möggu og Ástu!
Er búin að skella inn nokkrum myndum fyrir þig Fanney frá árshátíðinni.. Betra seint en aldrei...
Og já, þeir sem ekki vita þá er ég að fara að flytja suður
29nóvember

Jæja nú kemst ég nú ekki frá því að blogga aðeins, fyrst ég hef ekkert að gera og fólk er orðið svona pirrað af þessu bloggleysi mínu...!
Margt búið á daga mína drifið síðan síðast, þar síðasta helgi var rosaleg...
Fimmtudagurinn sérstaklega, fórum vinkonurnar og kíktum aðeins á barinn og vera voða slakar, fá okkur einn bjór og fara svo heim en það endaði nottla á þver öfugan hátt..!Heldum allavega heljarinnar partý í Rassgötu 3.. hhehe það var gaman, (fyrirgefðu samt Þórdís, ætlaði ekkert að vekja þig)

En já svo á föstudaginn héldum við Rósa af stað vestur yfir heiðar í Kolugil og fórum svo á uppskeruhátíð Þyts um kvöldið, og svo á laugardaginn var haldið upp á afmælið hennar Fanneyjar skutlu á Kolugili á laugardagskvöldið.. Snilldar afmæli í allastaði, bara stuð! Bollan kannski í sterkasta kanntinum en það var bara betra!
En mjög svo eftirminnilegt afmæli þratt fyrir það!
Svo var síðast vika bara róleg, bara skóli og aftur skóli, er alveg komin með ógeð á þessum helvítis skóla...! Bíð bara eftir þvi að komast í jólafrí og taka hestanna mína inn...!
Jór minn er samt farinn til Svíðþjóðar, hann fór á mánudaginn.. á eftir að sakna hans ekkert smá mikið!
Hvaða hest á ég nú að hafa út á krók! Æi vonandi líður honum samt vel þarna úti, án mín.. Það var einhver stelpa sem keypti hann, hún á pottþétt eftir að fara vel með hann, trúi ekki öðru!

Jór þessi sæti leirljósi í miðjunni
Heyrðu og já svo var síðasta helgi nú líka ágæt..
Allavega föstudagurinn, ball með spútnik á barnum... Mikið dansað og mikið fylliri, helt samt að ég hefði ekkert verið neitt svaðalega full, en svo kom einn karl áðan í ljós og spurði mig hvernig ég væri í handleggnum og ég fór eitthvað að spyrja hann hvað hann væri að meina og þá hafði ég víst slegið hann tvisvar utanundir þegar hann ætlaði að tala við mig á balinu, þannig að ég hef komist aðþvi að ég hef víst verið aðeins hressari en ég helt!
Var alveg eins og skítur vissi ekkert hvað ég atti að segja við greyið manninn, veit ekkert hver þetta er, hef aldrei séð hann áður! (ekki svo ég muni)
En já svo var laugardagurinn bara tekinn rólega, kíkti aðeins á barinn um kvöldið en fór svo bara snemma heim að sofa.. síðan á sunnudaginn voru öll hrossin rekin heim og þau ormasprautuð og sorteruð...! Voða gaman

Tókum líka nokkur tryppi inn til að gera bandvön, meðal annars, Reyni minn og Arð og Káinn...! Djöfullinn sem hann Reynir er vigalegur, við eigum sko einhvern tímann eftir að sjást á vellinum...!
Æi ælta að fara að þrífa svo ég verði einhvern tímann búinn! (Er sko að vinna)
Ekki gaman
14nóvember
Er eitthvað svo löt, hef ekkert að segja.. Er samt að fara á árshátíð um næstu helgi, það verður stuð! er sko að fara á Árshátíð Þyts með henni Rósu minni. Vonandi verður bara eins gaman og í fyrra!

hehe flottar..

Sætur svipur!

Siggi vinnumaður og ég.. Honum fannst ég geðveikt skemmtileg
Svo nokkrar spurningar um mig, sem ég stal af síðunni hennar Silju! Svarið nú...
1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst?
4. Ertu hrifin af mér?
5. Langar þér að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað, hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíma langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?
Verið dugleg að commenta, svona nú þetta er rosa gaman..! 
09nóvember
Shitturinn hvað mér leiðist, er í vinnuni og það er nákvæmlega ekkert að gera... Er búin að hanga á netinu frá því ég byrjaði að vinna kl 6... :(
Er samt búin að eignast tvo nýja vinni hérna, veit samt ekki hvað þeir heita... Annar er 40 ára og hinn 26, þeir eru mjög skondnir, þeir halda að ég sé 83 módel, því það var einhver stelpa sem sagði þeim það og vilja ekki trúa að ég sé bara 18 ára lítill krakkaskítur.. hehe
Held samt þeir séu bara svoldið á þörfinni að ná sér í konu og voru svoldið svekktir þegar þeir komust að því að ég væri alltof ung fyrir þá... Þessi 40ugi segir samt að aldur sé afstætt hugtak og ef við myndum ná saman þá væri það bara hið besta mál og við gætum bara gift okkur og eignast börn þótt það væri svona mikill aldursmunur á okkur... hehe svona tölum við saman hérna á þreksport!
Hver vill samt bjóða mér í video eftir vinnu, alltaf langt síðan ég hef haft það kosí með vinum og horft á góða mynd.. sakna þess, býður einhver sig fram?
Jæja er farin að skúra, þannig að ég verði fyrr búin!
bless í bili Eyja
02nóvember
Halló halló góðir hálsa.. Ætla bara að byrja á því að afsaka mig á því hvað ég er búin að vera löt að blogga. (betra er samt seint en aldrei)
Af mér er allt gott að frétta, fyrir utan það að ég er eitthvað hálf slöpp.. Er með hálsbólgu og kvef og ég vorkenni mer alveg ógerlega..! Það er svo ógeðslega leiðinlegt að vera veikur, það er alltaf svo margt sem maður þarf og langar að gera þegar maðru er veikur og á að vera að hvíla sig.. Mér langar á hestbak..! mér langar líka að fara á krókinn, svo langar mér á barinn á morgun og á árshátíðinna á laugardaginn..
Hvort á ég að fara á árshátíð hestamannafélaganna héran í skagafirði um helgina eða fara á uppskeruhátíðinna 11.nóv. fyrir sunnan! Æi ætli það endi ekki með því að ég fari á þær báðar.. Á samt eiginlega engan pening! Kannski Rósa bjóði mér kannski bara á annað hvort, fyrst hún bauð mér ekki í bíó!
Er að hugsa um að hafa það ekki lengra í bili, ætla að fara að elda mér eitthvað í svanginn.. Garnirnar gaula ;o)

Mynd dagsins er af Kólgu minni sofandi... (bara krúttleg)
24október
Vá hvað ég er að drukkna úr heimalærdómi... Shitturinn, er núna sveitt að skrifa einhverja 10. bls sálfræði ritgerð sem ég átti btw að skila í dag, og svo þarf ég að líka að skila 2 stórum verkefnum í viðbót í þessari viku, 5 bls skýrslu og eina aðra ritgerð í næstu viku... alveg glatað! Ef einhver á ritgerð um átraskanir eða samkynhneigð, þá má sá hin sami alveg láta mig vita!
Lífið er samt ekkert alltaf eins glatað hjá mér eins og akkurat í dag ef þið erum að spá í það.. Fór meira að segja á alveg ljómandi gott ball með Á MÓTI SÓL um helgina! Við Ásta byrjuðum á því að fara upp á Hóla og taka okkur til hjá Rósu og kíkt aðeins í partý til Elínu og svo var farið til Bigga og síðan var haldið á ball... Snildar ball í alla staði, þótt maður hafi nú látið ýmislegt út úr sér og gert annað sem ég hefði kannski betur átt að láta kurrt liggja, en svona er þetta bara! Maður þar bara alltaf að segja það sem manni liggur á hjarta þegar maður er fullur.. ;o)
Held ég hafi bara aldrei verið eins þunn eins og í gær.. Helt hreinlega að ég myndi láta lífið, gat nefnilega ekki hætt að djamma eftir ballið, heldur fór aftur í partý til Bigga og vorum við að alveg til kl 9 um morgunin og svo var farið til Hansa og haldið áfram að djamma þar.. Þannig að mín sofnaði ekkert fyrir en kl 6 á laugardaginn og var þá svo görsamlega búin á því að ég svaf til kl 2 á sunnudaginn... eða semsagt samfleitt í 21 tíma! Og var þá svona líka að drepast, það var eiginlega eins og ég hafi ekki sofið neitt.. Rosalega skrítið, held samt að ástæðan sé sú að ég hafi sofið ALLTOF mikið! Æi pínu pæling í gangi!
Ætla samt að fara að halda áfram að læra!
13október
Var búin að ákveð að hætta þessu heimasíðu bulli! En þegar það er prófaviku og ég á að vera að læra þá þarf maður alltaf að finna sér eitthvað annað að gera heldur en það! Það er líka þannig að þegar það er mikið um að vera hjá manni og fullt að gerast og skrifa um, þá gefur maður sér ekki tíma eða nenni ekki að skrifa um það... Þannig er það einmitt búið að vera hjá mér, þangað til núna..
Er búin að vera í 8 prófum í þessari viku og á að vera að læra undir það síðasta sem er sálfræði kl 8 í fyrramálið en get bara ekki haldið mér við efnið.. Er alveg búin að fá ógeð á þessu öllu saman, finsnt eins og ég sé búin að vera að læra undir próf síðan ever.. þetta er alveg glatað, það verður líka langt þangað til ég fer í eins margar einginar eins og ég er í núna!
Var reyndar í réttum um síðustu helgi. Fór til hennar Rósu minnar í Viðidalstungurétt, bara gaman og mikið fjör.. Fórum svo ríðandi heim eftir réttirnar (btw berbakt) sem var náttúrulega algjört stuð, þótt jafnvægið væri kannski ekkert sérstaklega mikið, það er heldur ekkert grín að sitja þennan brokk stampara sem ég var á, komumst samt öll heil heim þótt það hafi nú verið tvísýnt hjá Agnari á tímabili..
Svo var farið í fjósið og mjólkað kýrnar og gefið kálfunum og svona og svo var bara farið á ball eftir að maður var búin að leggja sig og fara í sturtu...
Ballið var bara pjúra snilld, hef ekki farið á eins gott ball í langan tíma.. Geiri stendur sko alltaf fyrir sínu ;)
Vill því bara þakka öllum fyrir frábæran réttardag og ball, og bara svo það sé að hreinu Rósa mín, þá kem ég sko aftur að ári..
Eyja kveðu í bili (ætlar að sökkva sér í sálfræðinna)!